Leit

Auglýsing

Könnun

Hefuru farið á ball með Geirmundi?

fólk er fíbbl

31. desember 2006 klukkan 03:22
halló... þetta er búinn að vera erfiður dagur í dag... var að vinna frá 11-20... samt var ímislegt sem var gaman:P ...

ég er buinn að sjá það að það er ekki í lagi með sumt fólk... í dag var ég að raða gosinu í goskælinn og eins og margir vita sem mig þekkja þá hef ég buxurnar yfirleitt niðri á miðjum rassi. en allavega ég var í mínu mesta sakleisi að raða gosi þegar ein kona kemur og reynir að girða upp um mig buxurnar... ég hélt fyrst að þetta væri Guðrún eða Bergþóra eða eikker sem var að vinna en það var bara einhver fullorðin kona... ég var nú ekki beint ánægður:P og svo fór hún að rífast við mig um að ég ætti að klæða mig sómasamlega af því að ég er í þjónustustarfi... ég sagði henni að það kæmi henni nú ekki neitt við hvernig ég klæði mig í vinnunni en þá fór hún eitthvað að rífast í mér... skil ekki alveg hvað er að hjá henni en það hlítur að vera eitthvað mikið:P

annars var nú ekki mikið merkilegt sem gerðist í dag... nema að það sprakk tveggja lítra appelsínflaska og það fór appelsín útum allt... við fanney vorum í svona hálftíma að þurka það allt:P

kvh er pleisið...

ég er buinn að ákveða að fara á áramótadiskó um áramótin... það verður fjör... ætla sko ekki á blö... þótt að helga una sé búin að reyna að draga mig þangað;) sorry :P

bless
Birkir Þór Þorbjörnsson
5 athugasemdir

jólarass

28. desember 2006 klukkan 03:01
jeijj jólin eru komin... og ég fékk marga pakka :D

aðfangadagskveld var mjög skemmtilegt. amma og afi borðuðu með okkur og opnuðu pakka líka... ég fékk alveg slatta af flottu dóti... þetta fékk ég:

vinnubuxur frá ma og pa
fartölvumús frá hafdísi
bol frá möggu og braga
friends seria 2 og nammi frá bryndísi helgu
piparkökur, handklæði, þvottapoka og sápu frá ömmu og afa
06.06.06 cd frá birtu og sindra
... fékk alveg slatta mikið í viðbót sem ég nenni ekki að segja frá... þó að það hafi allt verið geggjað:P ;)

jájá...

á morgun ætlum við pabbi að skella okkur í rvk... það verður fjör :)

bless
Birkir Þór Þorbjörnsson
2 athugasemdir

ég þrauka

22. desember 2006 klukkan 01:00
hehe fór með fanney í bíltúr í gær... og ég lifði það af... það var gaman að vera sá fyrsti til að fara með henni að keyra... mikið gaman:) jájá hún er ekki svo slæm í að keyra...

alltaf gaman í kvh... ekki neitt að gera svo að við erum bara látin þvo lagerinn... og í dag þurftum við björt að fara uppá grænmetis og mjólkurkælinn og skúra hann:P haha geggjað gaman

á morgun er ég að vinna frá 9-19... nenni því ekki... alls ekki... en svo er ég í frí á Þorláksmessu, aðfangadag, jóladag og annan í jólum,.... það verður svo ljúft :P

bless
Birkir Þór Þorbjörnsson
Engin athugasemd

kvh að gera sig í tætlur

15. desember 2006 klukkan 05:59
halló.

það er nóg að gera hjá mér þessa daganna. mæti galvaskur til vinnu hvern dag klukkan 08:00... svo eru söngvakeppnisæfingar seinni partinn... þær ganga mjög vel og það er enginn lélegur söngvari í ár... allir krakkarnir standa sig betur en við þorðum að vona... en nóg um það í bili og meira um það seinna...

það er bókstaflega ekkert að gera í kvh... allar hillur eru fullar og fólk virðist ekki kaupa neitt sem er til... svo kemur það bara og kvartar þegar varan er ónýt og við buin að henda henni:P svona gengur þetta...

fokk ég veit ekkert hvað ég á að skrifa meira maður...

VARÚÐ
fanney náði bílprófinu. foreldrar beðnir um að hleypa börnum sínum ekki út eftir klukkan 18:00... gangandi vegfarendur eru beðnir um að gæta að sér þegar gult slys (hjondæ accident) sést þjóta um göturnar.

jæjja þetta er orðið gott í bili... bæjó

P.S. fanney bauð mér á rúntinn þannig að þetta gæti verið mitt síðasta blogg:P haha djók

Birkir Þór Þorbjörnsson
3 athugasemdir

jæjjja

09. desember 2006 klukkan 06:32
oki ég ætla að láta verða af því og byrja að blogga... eitthvað...

prófin eru byrjuð og þau ganga ágætlega. fór í fyrsta prófið á miðvikudaginn. það var framkvæmdir og vinnuvernd. létt að vanda. á fimmtudaginn var íslenska. frekar létt held ég... fannst mér ganga nokkuð vel... svo í morgun var grunnteikning. fengum ekki nema 80 mín til að gera tvær myndir. önnur þeirra var geðveikt tímafrek... eftir klukkutíma var ég ekki hálfnaður með hana. en nóg um það og meira um það seinna...

núna er söngvakeppnaruglið að byrja af krafti. í fyrramálið koma krakkarnir í fyrsta skipti að syngja með okkur... fjör... þarf að vakna klukkan 8 eða eitthvað svoleiðis... kannski maður fari að leggja sig...

í dag fór ég og reddaði mér vinnu í jólafríinu... kvh er málið... yeah... það verður gaman... verð bara að vinna frá 8-15 fyrst um sinn og svo allan daginn eikkutíman seinna... jájá það verður fjör að vinna með björt ;) haha

jæjja best að fara að sofa... bráðum

já þið verðið að svara þessu rugli: :D

1.Hver ert þú ?

2. Erum við vinir ?

3. Hvenær hittumst við fyrst ?

4. Ertu hrifin af mér ?

5. Langar þig að kyssa mig ?

(samfylgjandi þeirri sem er fyrir ofan). Hefuru Kysst mig?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu af hverju þú valdir það:

7. Lýstu mér með einu orði:

8. Hvernig leist þér á mig fyrst þegar þú sást mig ?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig ?

10. Hvað minnir þig á mig ?

11. Ef þú gæti gefið mér eitthvað, hvað myndi það vera ?

12. Hversu vel þekkiru mig ?

13. Hvenar sástu mig síðast ?

14. Hefur þig einhverntíman langað til að segja mér einhvað en ekki getað það ?

15.Hefur þig einhvern tímann langað að meiða mig ?

16.Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig ?


Birkir Þór Þorbjörnsson
9 athugasemdir

23. október 2006 klukkan 00:17
halló. birkir hérna. er að hugsa um að byrja aftur að blogga. það er ekki eins gaman og ég hélt að vera laus við að blogga.

er að fara á krókinn á eftir. fer með auðunni. það verður fjer. krókurinn er ekki alveg að gera sig... alltaf skítaveður og eikkað... annars er geggjað stuð þar sko...
 
kem kannski með áhugavert blogg síðarmeir.

BirkirÞórÞorbjörnsson
Birkir Þór Þorbjörnsson
3 athugasemdir