16. febrúar 2007 klukkan 18:37
þetta er ljót síða og ég er hættur að vera með hana... hún er ljót og leiðinleg...
bless
Birkir Þór Þorbjörnsson
02. febrúar 2007 klukkan 04:48
hallóó... í gær var fjör hjá mér... fór í tíma klukkan átta og búinn klukkan ellefu :D hélt rakleitt upp á vist og fór að sofa... vaknaði svo klukkan fjögur.. það var gott :P haha þá kom tommi til mín að bjóða mér með á akureyri... ég þáði boðið með þökk...
það var gríðarlegt fjör á akureyri... fór t.d. á subway í fyrsta skipti... það var geggjað gott að borða þar... hittum fullt af fólki frá króknum... ella og fullt af liði :P fórum svo bara í bíó á mind sem heitir litla frú sólskyn (litle miss sunshine) hún er alveg kyngimögnuð... geggjað fyndin og frábær...
bless
Birkir Þór Þorbjörnsson
31. janúar 2007 klukkan 05:26
halló. ég er bara hérna að láta mér leiðast á vistinni á króknum... stuð... horfði á leikinn áðan. frekar fúlt. var svoldið mikið svektur. þótt að þetta sé góður árangur hjá íslenska landsliðinu að komast í 8 liða úrslit. nokkuð gott...
jájá... ekki mikið að gerast hérna... mér leiðist frekar mikið núna en nenni ekki að fara að sofa.... þarf að fara í skólann klukkan átta í fyrramálið.. er reyndar bara í verklegu frá kl 8-11 og svo íþróttir klukkan eitt... ágætur dagur svosem..
jámmjámm ég hlakka svoldið til að komast heim um helgina... hehe ég er að verða eins og gréta hehe...
jájá þið segið það...
bless
Birkir Þór Þorbjörnsson
22. janúar 2007 klukkan 06:58
jæjja gott fólk... blogg á leiðinni :P haha
jájá helgin ný afstaðinn og ég slapp nokkuð heill frá henni... hafði ekki mikið að gera... horfði á ísland taka ástralina í rassinn í sjónvarpinu... það var fjör :P svo var ég nú bara að taka því rólega... annað en sumir :D haha... jájá svo í dag fór ég á hljómsveitaræfingu... þar var mikið húllumhæ... æfðum í smá stund og fórum svo í handbolta og horfðum svo saman á leikinn... mikil vonbrigði... fór heim með grátstafinn í kverkunum. fékk mér að borða, pakkaði í snarhasti niður og fór í rútuna... frábær dagur hjá mér :P
er núna bara á króknum að horfa á friends.. stuð :P
frekar leiðinlegt blogg en þið skulið samt commenta...
jæjja beta, vertu nú ánægð :P
... bless
Birkir Þór Þorbjörnsson
15. janúar 2007 klukkan 08:30
halló... ég er kominn á krókinn aftur eftir þessa skemmtilegu helgi:P svaka stemming hér á vistinni... var að setja inn myndir frá kvöldinu í kvöld.. sýna hvað það er lítið að gera :P haha
bless
Birkir Þór Þorbjörnsson
14. janúar 2007 klukkan 03:23
LOKSINS...
búinn að vera á króknum í viku... stundarskráin mín er alger snilld... er mjög ánægður með hana... er í 24 verklegum tímum á viku... sem er snilld... jamm er að fara að smíða geggjað flotta hluti í vor... sjónvarpsskáp og fleira... bara stuð... annars er lítið búið að vera að gera á króknum... mæti bara í skólann og fer svo upp á vist að horfa á dvd eða að sofa... gott líf... þarf nú að fara að taka mig á í að mæta að lifta ;)
söngvarakeppni grunnskólanns var í dag... byrjuðum í gær um klukkan 18 að setja upp kerfið og svo æfing með krökkunum til 22:00... svo mættum við klukkan níu í morgun... það var fjör:P allir geggjað hressir :P
það gekk bara vel að spila... skitum ekki neitt á okkur.... og úrslitin voru ágæt... heiðrún og perla unnu yngri flokkinn og lóa og helga unnu eldri flokkinn...
er frekar feginn að þessi keppni er búinn þó að það verði líka soldið leiðinlegt:P hehe er alveg til í að gera þetta aftur að ári...
bless
Birkir Þór Þorbjörnsson
08. janúar 2007 klukkan 22:57
hæ... skólinn byrjaði í dag... það er stuð... fengum stundaskrána í dag og mín er alger snilld :D er búinn um ellefu á föstudögum :D og það er nú gott og blessað. þurfti áðan að fara og láta laga stundarskrána mína því að ég var settur í vitlausa stærðfræði.svo fór ég og bað um að vera ekki með raimund að kenna mér og þá var það ekki hægt nema að ég færi í 122 þannig að ég geri það bara :D og það verður sko ekki raimund sem kennir það :D HAHA FEIS :P svo verð ég í geggjað miklu verklegu.. sem er geggjað gott og gaman:P fór í dag í tíma og við fáum að gera fullt af flottum hlutum... t.d. verkfærakistu, vinnutröppu og sjónvarpsskáp :D ég hlakka svo til að gera hann. það verður gaman já:)
núna hef ég ekki mjög mikið að gera... danni og áki báðir sofandi og guggi í tíma og svona... þannig að ég verð bara að nota tímann og blogga:P
ég er búinn að tína kortinu mínu.. þannig að ég get ekki keypt mér neitt að eta... og ekki heldur bækurnar... en það reddast vonandi...
jæjja
bless
Birkir Þór Þorbjörnsson
07. janúar 2007 klukkan 07:00
orð dagsins: RASS
ég er búinn að vera með rass á heilanum í allan dag. söng bullutexta við öll lög og alltaf sagði ég rass.
þetta er búið að vera langur dagur hjá mér... fór á fætur klukkan hálfníu... úff það var erfitt... og hélt niður í félagsheimili klukkan níu með 3 samlokur í farteskinu. vorum btw að æfa fyrir söngvakeppnina... og andri gat ekki mætt... en við létum það ekki á okkur fá... æfðum stanslaust í allan dag... það var alveg hrikalegt... það kom í ljós að andri er mikilvægari en ætla mætti... en við reyndum og svo verður þetta tekið með trompi á laugardaginn... já shit... söngvakeppnin er á laugardaginn :O hjálp...
er að fara á krókinn á morgun... það verður vonandi gaman... verð sennilega bara í þrem bóklegum fögum og tveim verklegum :D það er fínt... það kemur allt í ljós á mánudaginn..
RASS
BLESS
Birkir Þór Þorbjörnsson
03. janúar 2007 klukkan 06:17
hæ...
dagurinn í dag var frekar leiðinlegur. var að vinna frá klukkan átta í morgun til klukkan níu í kveld. og það var vörutalning btw. geggjað leiðinlegt og niðurdrepandi... en sem betur fer mundi ég eftir iPodinum... hann er mesta þarfaþing og í dag sannaði hann sig... svo klukkan svona hálftíu í kvöld þurfti ég að fara á hljómsveitaræfingu... og var að koma heim núna klukkan tólf... semsagt ekki buið að vera skemmtilegur dagur... hef ekki tíma til að fara í bað... æji jú kannki.... fer bara seint að sofa...;) það reddast... svo er vinna á morgun til svona sjö ogsvo sennilega æfing aftur... annars veit ég það ekki...
nenni ekki að skrifa meir.
bless
Birkir Þór Þorbjörnsson
01. janúar 2007 klukkan 23:21
hæ hó... gleðilegt ár

í gær var gamlárskveld og því var fagnað með pompi og pragt

við borðuðum lambalæri með ömmu og afa... það var mjög bragðgott. svo fórum við pabbi og hafdís á brennu. flugeldasýningin var þokkalega flott sko.
um klukkan tólf fórum við að sprengja af krafti. vorum með eikkera tertu sem var mjöf fín. svo vorum við með eikkera svaka rakettu sem var þrískipt og sprakk í þrem hlutum. hún var ekkert spes... svo um hálf eitt byrjaði diskó í félagsheimilnu... ég fór niðreftir klukkan rétt fyrir eitt og þá var einn mættur:P það var ari ara ;) svo beið ég eftir að fólkið kom og fór þá að skemmta mér:P mér fannst mjög gaman á ballinu... geggjað gaman að spjalla við alla;) amm... kannski eitt sem hefði getað farið betur en allt var gaman:D
bæbæ
Birkir Þór Þorbjörnsson